Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Anna Sóley
  • Atvinna: Desperate housewife
  • Hjúskaparstađa: Gift
  • Um mig: Ég heiti Anna Sóley Karlsdóttir 26 ára gömu fćdd og uppalin í Skagafirđi í sveitasćlunni. Búsett núna í Grafarvoginum ásamt Róberti Gils manninum mínum og synum okkar.

Mömmu mafían

Í dvala

29. september 2008 klukkan 23:33
Hætt að blogga endurkoma hugsanleg síðar.........

.....

02. september 2008 klukkan 10:45
Allir strákarnir mínir í skólanum og ég sit alein heima Snævar reyndar bara  mjög stutt í leikskólanum hann er ekki beint sáttur við að vera skilinn þar eftir litla skinnið.
Er búin að vera að horfa á So you think you can dance gjörsamlega elska að horfa á þetta og ekkert eðlilega flott hvað þessir krakkar getað dansað flott.
Fór á Mamma Mía  síðasta föstudag með Kristínu sytir og mömmu og við skemmtum okkur alveg frábærlega myndin var sko betri en ég bjóst við.
Ætlum að skella okkur norður næstu helgi í réttir:)
Váhh sjúkt veðrið sem kom í gær

Boys at school

25. ágúst 2008 klukkan 00:03

Við komin í borgina fyrir nokkrum dögum eftir ljúfa daga í sveitinni.


Sjóstangaarveiðtímabilinu og var Robbi í 3. sæti til íslandsmeistar og í 2. sæti í heildarafla yfir sumarið. Glæsilegur árangur hjá honum enda mætti á öll mót sumarsins en að mér skilst voru aðeins 2 aðrar manneskjur fyrir utan hann sem mættu á öll mótin.


Fyrsti skóladagurinn hjá Sindra Gils á morgun ægilegur spenningur í gangi


Snævar Gils byrjaður í aðlögun í leikskólanum og vill sko ekki að mamma skilji sig eftir


Robbi að byrja í múrara náminu sem leggst vel í hann


Helgin búin að vera góð tekið því rólega hér heima í gær en urðum nú auðvita að fara niður í bæ að sjá flugeldasýninguna sem var mjög flott


Við boðið í 3 afmæli í dag en komumst aðeins í 2 af þeim.


Strákarnir okkar búnir að standa sig eins og hetjur á ólympíuleikunum hefði verið toppurinn á tilverunni að hreppa gullið en við megum sko vera sátt við silfrið.


Matargerđ og sćlkera kökur

25. júlí 2008 klukkan 23:28

Ég er búin að vera með æði í eldhúsinu undanfarið að elda og baka hef nefnilega aldrei verið spennt fyrir eldamennsku en alltaf haft gaman af að baka.
Búin að vera að prufa nokkra nýja rétti sem hafa heppnast og bragðast vel eins og
Svínakjötpottréttur með karri íog ananas (mjög fínn og matarmikill og saðsamur)
Kjúklingur í kókossataysósu (alveg ágætt reyndar sjálf komin með smá leið á sataysósu)
Mangó kjúklingur (mjög gott)
Næst á dagskrá er að gera steikta ýsu með kókos og karrí.
Stóri strákurinn minn að verða 6 ára á mánudaginn svo ég er búin að vera að baka slatta af girnilegum botnum fyrir family afmæli um helgina en ekki búið að festa dag fyrir krakkaafmælið.

Rosalegt með  Pólverjann ég spyr nú bara á hverju var maðurinn??? ansi furðulegt að hverfa úr vinnunni um morguninn og ganga nakinn upp Esjuna og no turning back STÓRFURÐULEGT ALVEG.



Update

18. júlí 2008 klukkan 13:43
Komum heim úr sveitinni síðasta sunnudag eftir rúma 2 vikna dvöld þar í sælunni reyndar hefði mátt vera hlýrra fyrir norðan en það komu nú samt góðir dagar inn á milli. Strákarnir létu nú veðrið lítið á sig fá og fóru út nánasta alla daga að leika,sulla og drullumalla. Eins vorum í góðu yfirlæti hjá Þyrey í 3 daga og var mikið fjör með krakkaskaranum.

Robbi er í sjóstöng um helgina á Ólafsvík hann er alveg á fullu í þessu í sumar og er búinn að halda 1.sæti til íslandsmeistara síðan í lok maí svo það er bara spennandi að sjá hvernig honum mun ganga í mótinu og síðustu tveimur mótunums sem eru í ágúst. Væri alveg geggjað ef hann nær að halda sætinu en allt getur gerst þetta er ansi spennandi.
Sindri byrjar í sumarfríi í dag og hættur fyrir fullt og allt í leikskóla næst tekur skólagangan við það verður aldeilis spennandi og minn maður búinn að eignast skólatösku fyrir haustið.

Læt fylgja nokkrar myndir af okkur með ömmu minni sem lést 2. júlí síðastliðin eftir erfið veikindi. Erfitt að kveðja mína einu ömmu sem ég hef kynnst og á eftir að sakna sárt, sérstaklega þar sem  hún var við hestaheilsu snemma í vor bjó enn heima hjá sér,svo lífsglöð og yndisleg. Ég er svo þakklát fyrir helgina sem hún dvaldi hjá okkur í apríl og eins heimsótti ég hana í veikindunum á sjúkrahúsinu. Hún skipaði mjög sérstakan sess hjá Sindra og hann var alltaf jafn spenntur að fara að hitta langömmu á Akureyri eða hún að koma til okkar í heimsókn. Hún var svo rosalega góð og yndisleg við öll ömmu og langömmubörnin sín. Miklar spurningar og pælingar hafa verið í gangi síðustu vikur og mikið spáð í himnaríki,englum og hvort hægt sé að að sjá og tala við engla. Í gær bað hann mig að opna glugga svo langamma(engill)kæmist inn í herbergið til hans.
 Guð geymi þig elsku amma

Sindri með langömmu

Bræðurnir með langömmu

Í sveitinni er gott ađ djamma og djúsa

26. júní 2008 klukkan 12:37
Ohhh hvað það er leiðinlegt að pakka niður og þvílíki farangurinn sem fylgir manni  alltaf. Erum að fara í sveitina á eftir síðan verður siglt til Grímseyjar á morgun í Fjölskylduhátíð hjá Sjóstangaveiðifélagi Akureyrar. Ætlum svo að njóta sveitarsælunnar eftir helgina í tæpa viku:)
Adios

Esjuferđ

24. júní 2008 klukkan 23:31

Ég og Sindri löbbuðum á Esjuna í gær ásamt orustusveitinni hans í leikskólanum og nokkrum fóstrum. Krakkarnir fóru sko létt með að þeytast þarna upp hlíðarnar. Síðan var stoppað til að borða nesti og spjalla eftir það var foreldrum frjáls að labba upp eða niður með börnunum sínum Sindri tók nú ekki annað í mál en að labba hærra upp við fórum vel hátt upp en þó ekki á toppinn
Hef barasta aldrei labbað Esjuna áður en þetta var alveg rosa gaman,veðrið geggjað og æðislegt að komast út í nátturna en samt bara hérna rétt við Rvk. Þrælgóð líkamrækt að labba þarna upp enda mín með strengi í dag hehe.

Síđustu dagar

19. júní 2008 klukkan 10:30

Vorum að koma heim úr sundi vöknuðum svo snemma að ég dreif okkur mæðginin í sund en Robbi fór að vinna. Sindri fór svo í leikskólann eftir sundferðina.


Væri ég þokkalega til í að eiga garð núna til að spóka sig út í sólinni, það kemur að því einn daginn þegar maður verður ríkur;)


Síðustu helgi eyddum við upp á Skaga hjá Sillu mágkonu, Robbi keppti í sjóstangaveiði og kom auðvita heim með verðlaunagripi. Við nutum þess að vera úti í garði og fórum á ströndina í skeljatínslu.


17. júní var kíkt í bæinn í mannmergðina við löbbuðum nú bara aðeins um svæðið svo stappað að maður sá lítið sem ekkert á sviðið á Ingólfstorgi og Sindri nennti ekki einu sinni að bíða í röð í leiktækinn. Bræðurnir fengu gasblöðrur og fóru mjög lukkulegir með þær heim að leika.

 

Það fór eins og ég var handviss um að ísbjörnin yrði skotinn á endanum ég bara vissi það að þetta björgunarstarf myndi ekki heppnast. Ég er nú búin að gera mikið grín í pabba að fylgjast með ísbjörnum í fjallanum þar sem fyrri ísbjörnin sem kom í Skagafjörðinn var hinum megin á bak við fjallið heima hjá okkur hann hefði alveg getað labbað yfir og mættt pabba einn morguninn hehe.

Sindri Gils

Sumar og sól

13. júní 2008 klukkan 12:43
Yndislegt alveg að fá ekta sumar veður loksins. Við búin að labba,hjóla,leika mikið úti þessa vikuna alveg yndislegt.

Skrapp norður á dögunum að heimsækja hana elsku ömmu mína sem liggur inn á sjúkrahúsi mjög veik alltaf jafn yndislegt og gaman að hitta hana og spjalla. Mér þykir verst hvað maður hittir hana sjaldan vildi að ég  ætti einkaflugvél og færi á milli landshluta þegar mér hentaði hehe,vildi að ég gæti kíkt til hennar núna daglega.

Verðum á Skaganum um helgina í sjóstangaveiði og systkina hittingi hjá Robba. Ætla nú samt að skjótast í bæinn og kíkka í 1-2 útskriftarveislur.

Njótið sólarinnar, innipúkar eru glataðirUllandi

Tiltekt

06. júní 2008 klukkan 09:49
Búin að standa á haus við að taka til í skápum ótrúlegt hvað safnast mikið af drasli í skápana og fullir af of litlum  fötum fór með helling í Rauða Krossinn. Næstum búin að standsetja herbergið fyrir Snævar Gils og hann svaf þar í nótt sem gekk rosa vel. Sindri fékk líka breytingu inn í herbergið sitt, auka hillur sem veitir ekki af.

Ætluðum í bústað í dag en hættum við veðurs,jarðskálftahræðslu og afmælisboðs.

Fór á Sex and the city í bíó á dögunm með nokkrum gellum myndin var hreint og beint frábær:)

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Leit

Ég ammali

Könnun

Á ađ fara erlendis í sumar?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...